Dóra Kristín fæddist
í Reykjavík 1953 og ólst þar
upp.
Eftir undirbúningsnám í
Myndlistarskólanum Myndsýn, lá
leiðin í Myndlista og
Handíðaskóla Íslands
(MHÍ) árið 1971. Þar lauk
hún tveggja ára fornámi og einu
ári í keramikdeild. Sótti um
skólavist í Kunst og håndverkskolen
í Oslo árið 1974, fékk
þar inngöngu en nýtti ekki
tækifærið. Gerðist
þá bóndi og starfaði
við það frá 1974 – 1988.
Árið 1980 hóf hún aftur
nám í MHÍ, í kennaradeild
skólans og lauk þaðan
burtfararprófi sem myndmenntakennari árið
1982. Næstu árin kenndi hún myndlist
í Grunnskólanum á Laugalandi
í Holtum og síðan í
Grunnskólum á Selfossi til 2004. Frá
þeim tíma hefur Dóra Kristín
einbeitt sér að myndlistinni, fyrst á
Selfossi og svo nú í Reykjavík
frá 2006. Komin aftur heim til Reykjavíkur eftir
32ja ára fjarveru.