Dóra Kristín fæddist í Reykjavík 1953 og ólst þar upp.
Eftir undirbúningsnám í Myndlistarskólanum Myndsýn, lá leiðin í Myndlista og Handíðaskóla Íslands (MHÍ) árið 1971. Þar lauk hún tveggja ára fornámi og einu ári í keramikdeild. Sótti um skólavist í Kunst og håndverkskolen í Oslo árið 1974, fékk þar inngöngu en nýtti ekki tækifærið. Gerðist þá bóndi og starfaði við það frá 1974 – 1988.
Árið 1980 hóf hún aftur nám í MHÍ, í kennaradeild skólans og lauk þaðan burtfararprófi sem myndmenntakennari árið 1982. Næstu árin kenndi hún myndlist í Grunnskólanum á Laugalandi í Holtum og síðan í Grunnskólum á Selfossi til 2004. Frá þeim tíma hefur Dóra Kristín einbeitt sér að myndlistinni, fyrst á Selfossi og svo nú í Reykjavík frá 2006. Komin aftur heim til Reykjavíkur eftir 32ja ára fjarveru.