1970-1971 Myndsýn
1971-1973 Myndlista- og handíðaskóli Íslands – Fornám
1973-1974 Myndlista- og handíðaskóli Íslands – Keramikdeild
1980-1982 Myndlista- og handíðaskóli Íslands - Kennaradeild
1989-1991 Kennaraháskóli Íslands – Starfsleikninám
Ýmis endurmenntunarnámskeið
1974-1976 Bóndi á Vífilsmýrum í Önundarfirði
1976-1978 Bóndi í Smáratúni í Fljótshlíð
1978-1988 Bóndi á Snjallsteinshöfða í Landsveit
1982-1984 Myndlistarkennari á Laugalandi í Holtum
1988- 2004 Myndlistarkennari í Grunnskólum Selfoss
2004- Starfandi myndlistarmaður
Leiðin eina 2005
Skörun 2005
Vegvísar 2005Dóra Kristín hefur alla tíð haft sterka tengingu við náttúruna, elskar náttúru landsins, dýrin og ekki síst fugla sem oft verða að myndefni. Myndefnið sækir hún inn á við, vinnur í flæðinu og er yfirleitt ekki búin að ákveða myndefnið fyrirfram. Oftar en ekki tengist myndefnið náttúruvernd, náttúruvættum og tengslum mannsins við náttúruna.